Um kl. 18,30 hélt björgunarbáturinn Þór úr höfninni hér í Eyjum og sigldi vestur fyrir Heimaey.
Þar var beðið í smá stund eftir þyrlu LHG,Tf Sýn þar sem æfa átti menn og tæki í myrkri.
Fjórum mönnum var slakað niður úr þyrlunni í björgunarbátinn Þór.
Tveir Björgunarfélags menn fóru því næst í uppblásinn gúmmíbát og hífði þyrlan þá upp úr bátnum.
Eftir að Þór hafði náð í gúmmíbátinn hoppuðu tveir félagar í Björgunarfélaginu í sjóinn.
Þór bakkaði frá mönnunum og þyrlan athafnaði sig fyrir ofan þá, sigmaður seig niður og voru þeir tveir hífðir upp í þyrluna í sitthvoru lagi.
Að loknum æfingunum var siglt til baka og tveir menn úr þyrlunni voru um borð hjá okkur.
Þeim var keyrt upp á flugvöll þar sem þyrlan beið þeirra eftir að Björgunarfélagsmönnunum var skilað þangað.
Æfingunni var lokið um kl. átta. Skipstjóri á Þór í þessari ferð Addi Ella Pé.
Allar myndir óskar Pétur Friðriksson
 |
|
Slakað úr Þyrlu LHG tf Sýn um borð i Þór Mynd Óskar Pétur
 |
|
Þokkalegt veður á Æfingunni Mynd óskar Pétur Friðriksson
 |
|
Skipverjar i Björgunnarbát mynd óskar Pétur Friðriksson
 |
|
Björgunnarkarfa mynd óskar Pétur
 |
|
Maður Hifður úr Björgunnarskipinu i Þyrluna Mynd Óskar Pétur
 |
|
Báturin fundinn og verið að taka skipverja um borð mynd óskar Pétur
 |
|
Björgunnarmenn að störfum Mynd Óskar Pétur Friðriksson 2018
 |
| Björgunnarhópurinn um borð i Þór Mynd óskar Pétur Friðriksson 2018 |
|
|
|
|
|
|
|